8.3.04

Javol....
heiðursverðlaun dagsins fær Rita Mitsoko http://www.ritamitsouko.org/ fyrir að vera það skemmtilegasta sem ég hef rekist á undanfarið.. Þá mæli ég sérstaklega með einu af vinsælli lögum þeirra sem er Andy... einstaklega smekklegt.

Annars er allt að gerast núna... Myndin verður tekin um næstu helgi og skólinn styttist óðum.. svona er það...

Ef þetta væri nú bara alltaf svona.... ;)

yfir og út

2.1.04

Jeij.... ég fann passwordið...
jæja... áramótin komu fóru og voru æðisleg... kvöldið byrjaði heima með mögnuðum mat og flugeldum. Síðan var haldið á Stuðmannaball á Nasa (já ég veit... hvað á það að þýða?) okei okei ég fór allavegana ekki á Pravda.... Versta við þetta ball er að það var að mestu leyti fullt af fólki yfir þrítugt og ég taldi að minnsta kosti 7 fínar eldri konur með klemmueyrnalokka.. ekki það sem maður óskar helst eftir á gamlárskvöldi....
nema hvað... eftir gott ball á Nasa var haldið á Amsterdam á djamm með Einari Ágústi og Gulla sem ég verð að viðurkenna, voru helvíti góðir, þrátt fyrir nokkur júróvisíon lög og virkilega ómyndarlegan skara af fólki.. En nema hvað í anda nafns staðarins var þar eitt stykki gella sem klædd var eins og hóra =stutt pils, enn styttri bolur, netasokkar og stígvél. Og gettu nú... kom hún ekki upp að mér og spurði hvort að mig vantaði nú ekki aukavinnu... ég spurði við hvað eins og sannri ljósku sæmir og bauð gellan mér vinnu við Erótískt stripp eins og hún kallaði það.. Ég fór nú að hlæja og skildist mér það á henni að henni vantaði stelpur að vinna hjá sér sem ég get trúað að sé svona, tjah já mellustaður... ah well... það er ágætt að vita að einhver myndi ráða mann sem strippara þrátt fyrir aukakílóin... Nema kanski var ég bara að dansa svona asnalega.... damn... nú er ég hætt að dansa....
over and out

8.9.03

I'm the 712,056,556 richest person on earth!


Discover how rich you are! >>

30.8.03

Eftir að hafa lifað í mörg ár sem frumburður illskunnar ákvað ég að láta detta mér eitthvað mun frumlegra en að lúskra á ofurhetjum í nærbuxum.
Að gera eitthvað sem tekið væri eftir, eitthvað sem fólk var ekki komið með leið á. Ég settist niður og hugsaði stíft í þrjá daga og þrjár nætur. Ég íhugaði að taka yfir heiminn, að ræna forseta, sprengja tunglið þar til að ég loksins datt niður á bestu hugmynd allra tíma..

25.8.03

Ég er búin að eyða alltof miklu í skólabækur... ég er samt alls ekki fúl yfir því vegna þess að þeim peningum er ekki illa eytt... Ég er samt mjög hrifin af einni bók sem ég keypti.
Hún heitir Kýrhausinn- Tækni Les Tours. Virkar helvíti töff kall. Þetta er kall sem var rosalega seinfær, byrjaði til dæmis ekki að labba fyrr en 4 ára, en hann gerði allt sem honum sýndist það sem eftir var æfinnar. Hann kleif 10 hæðstu tinda heims og var brjálaður hjólagaur. Stofnaði sirkus, skrifaði kennsluritgerðir, græddi í Kauphöllinni í kreppu og ég veit ekki hvað.
Svona langar mig að vera. Gera allt sem mér sýnist. Hann var líka giftur og allt. Nema auðvitað var konan hans alltaf heima að passa börnin 8.
Ég hef alltaf dáðst að svona fólki. Houdini var til dæmis einn af mínum mestu hetjum sem krakki. Maður sem kenndi sér allt sjálfur, var líka ótrúlega hraustur og gerði ótrúlega hluti. Svo var hann auvitað ótrúlega gáfaður.
Já... ég held að viljinn sé allt sem þarf..

23.8.03

Er eitthvað eins pirrandi og táfýla? það held ég bara ekki.. jú kanski fólk með táfýlu, og raðir, æ eitthvað fleirra. Ég veit bara að táfýla er pirrandi.
Ég fór einu sinni í íbúð sem lyktaði eins og táfýla.. ég var fljót út.
Enda á maður ekki að vera lengi þar sem táfýla er.

19.8.03

Mikið er ég fegin að skólinn sé að byrja.. ég er komin með ógeð af því að steikja sveittan mat og díla við leiðinlega kúnna.. ekki það að ég eigi ekki eftir að gera það í vetur líka en bara í minna magni.
Svo sæki ég stundatöfuna á morgun. Mesta snilld í heimi.. næ bara í hana á netið... Engin helvítis röð, fólk að ýta, fólk í pirringi fólk sem er að reyna að komast framar í röðina vegna þess að það er að fara að vinna.. nei.. maður bara loggar sig inn á náttfötunum. Nema auðvitað kerfið hrynji eins og venjulega.....
það er alltaf spurning..
Fyndið.. þegar ég er loksins að verða 18 og skólinn hættir að senda fjarvistar blöð til foreldra minna.. þá hættar þeir því algjörlega.. gat nú skeð..
en allaveganna.. gangi ykkur vel í skólanum í vetur..

14.8.03

ÞÚ ERT NÚMER 200
Það er ekki erfitt að vera ósýnilegur. Fylgdu bara norminu og þú munt hverfa í fjöldann. Skiptu um hárgreiðslu, skiptu um stíl og hverfðu inn í fjöldann með öllum öðrum.
Að öllum líkindum ertu þar hvort sem er.

13.8.03

Hér með tilkynnist öllum aðstendum Blá Þrumunar að hún hefur verið úrskurðuð látin frá og með deginum í dag.
Ég hef semsagt keypt mér nýjan bíl.. Sá er af gerð Toyota Carina II og mun þjóna mér í 1 til 2 ár í viðbót. Bíllinn er afskaplega ljótur og þess vegna ætla ég að efna til smá keppni hér.. Ég ætla að skrifa eitthvað skemmtilegt á þakið, eitthvað skemmtilegt, það má ekki sýna fordóma, dónaskap eða önnur leiðindi.. endilega komið með einhverjar skemmtilegar hugmyndir. Einnig vantar mig hugmyndir um það hvað ég ætti á mála á hliðarnar á honum.
Verðlaun eru eitt skutl innanbæjar í drossíunni.
Endilega svarið á kommentakerfið sem ætti að koma upp fljótlega.....

29.7.03

Já vó.. hóly shísús of the cherryfield. Það er ekkert í fréttum. Ég sver það, það er svo satt að dagurinn fölnaði.. ég hef ekkert að segja.
Annars var pósturinn hér að neðann tekinn úr "the talented mr.Ripley" ágætis mynd þannig séð. Passar akkúrat við það sem ég hef verið að pæla mikið í undanfarið sem er Rauveruleiki og raunveruleikaskyn.
Minn veruleiki er ekki sá sami og þinn og vice versa. Ég er hrædd við pöddur en þér finnst kartöflur vondar.
Get ég ekki ákveðið að vera ekki hrædd við pöddur og þykja kartöflur vondar?
Sálfræðin getur þetta. Sálfræðin getur læknað ofsahræðslu/ panikk þá hlýtur hún að geta sannfært mig um eitthvað fleira.
T.d. að ég sé Napóleon?
Ég lenti í því um daginn að atvik, sem ég hefði svarið upp á tíu fingur að hefði gerst í mínu lífi, var í raun og veru úr sjónvarpinu. Var ég þá búin að telja mér trú um það hefði gerst eða gerðist það í mínu lífi vegna þess að ég horfði á sjónvarpið.
æ.. þetta er alltof mikið til að vera skrifa hálf sofandi klukkan 4 um nótt..
Kveðjur..

27.7.03

I always thought it was better to be a fake somebody than a real nobody.

8.7.03

Mig langar í bækur héðan... og líka Teiknimyndabækur
Kanski ég ætti bara að fara út í bóka búð og kaupa mér þær bækur sem mig langar í þar fyrst og þá.. æ.. hvaða hvaða...

2.7.03

Nei... nú er ég ekki lengur skotin í Blogger.. Lei?inlegt bull og ?nnur vitleysa.... hva?a hva?a...?

1.7.03

Já þannig er nú það.. já félagar... svona er nú það..
Þetta er nú allsvakalegt verð ég bara að segja... bara allsvakalegt...
Ég dýrka blogger þessa stundina.. Hann varð skyndilega svo svakalega notendavænn.. gaman að þessu.. Elska þegar fólk gerir eitthvað frítt fyrir mann.
Já litlu lömbin mín.. heyrðu meðan ég man.. ég er búin að vera með hálsríg í meira í viku.. langar ekki einhverjum að nudda mig? á tímabili var ég eins og Mr. Zoolander ég gat bara horft til vinstri (nei hann gat bara horft til hægri var það ekki?)
Annars held ég að ég hafi séð örlög mín í dag.. Ég var að hugsa um það þegar ég hélt að hægri væri mun göfugra en vinstri, vegna þess að biblían sagði að Jésúm sæti við hægri hönd guðs og þess vegna ætti Satan vinstri hendina. (já ég trúði þessu jafnvel þegar ég fattaði að flestir skeina sér með hægri... ég var líka að velta fyrir mér hvað yrði um örvhenta.... en það er nokkuð sem ég mun fara út í seinna...(örvhentir það er að segja..)) En nema hvað kom ekki þessi kellíngarrauði bíll, með númerið R 1985. R mun standa fyrir Right sem útleggst víst sem rétt eða hægri á Íslensku (sko ein enn tilvísun í að hægri sé oft betri..) og 1985 mun víst vera fæðingarár mitt. Ég hafði hugsað mér að elt bílinn nokkra stund og athuga hvað hann var að meina en skyndilega beygði hann (bíllinn) uppí Öskjuhlíðina sem einmitt stendur sem stór hluti í þroskaferli mínum (NEI, það hefur ekkert með kynlíf að gera!!!)
Já .... Og nú er þar með staðfest að ég er ekki með réttu ráði...